Hingað til hafa eftirlaunaþegar sem búsettir eru erlendis þurft að fá útgefið svokallað lífsvottorð sem gefið er út eða staðfest af opinberum aðila í þeirra búsetulandi og senda það til sjóðsins. Með innleiðingu nýrra stafrænna lausna á vef og í innri kerfum sjóðsins er þess ekki lengur þörf. Innskráning á Mínar síður fer fram með gildum rafrænum skilríkjum í síma eða appi og þar með telst hún ígildi lífsvottorðs.
Þetta nýja fyrirkomulag sparar mörg spor því eftirlaunaþegar LSR með lögheimili erlendis eru um 1.000 talsins. Nú þurfa þeir ekki að útvega staðfest lífsvottorð hjá yfirvöldum í sínu heimalandi og koma því til sjóðsins. Jafnframt hefur það verulegan vinnusparnað í för með sér hjá sjóðnum að gera ferlið að mestu leyti rafrænt í stað þess að vinna handvirkt úr slíkum fjölda lífsvottorða.
Einfaldari innsending fyrir maka- og örorkulífeyrisþega
Samhliða þessu er nú einfaldara fyrir maka- og örorkulífeyrisþega sem búsettir eru erlendis að koma nauðsynlegum gögnum til sjóðsins. Makalífeyrisþegar þurfa árlega að skila hjúskaparstaðfestingu til sjóðsins og örorkulífeyrisþegar þurfa að skila inn afriti af skattframtali sínu ár hvert.
Þegar komið er að skilum þessara gagna fá viðkomandi sjóðfélagar áminningu með tölvupósti og tilkynningu á Mínum síðum. Um leið fá þeir aðgang að einföldu eyðublaði á Mínum síðum þar sem hægt er að skila inn viðkomandi gögnum með þægilegum hætti. Þannig berast gögnin beint inn í upplýsingakerfi sjóðsins, sem þýðir mun færri handtök við umsýslu gagnanna fyrir starfsfólk sjóðsins.
Þrenns konar innskráningarmöguleikar
Hægt er að skrá sig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum í síma, Auðkennisappinu eða nýrri innskráningarleið í gegnum Evrotrust.
- Rafræn skilríki í síma eru útgefin á skráningarstöðvum Auðkennis á Íslandi.
- Auðkennisappið er auðveld, þægileg og örugg leið til að auðkenna sig á vefnum og framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Appið er hægt að nota hvar sem er í heiminum, óháð símanúmeri en til þess þarf að hafa gilt íslenskt vegabréf.
- Evrotrust hentar best þeim sem eru ekki með gilt íslenskt vegabréf. Til að nota það þarf að setja upp Evrotrust-appið og fara í gegnum nýskráningarferli sem útskýrt er hér. Nauðsynlegt er að vera með vegabréf frá einhverju þeirra landa sem Evrotrust styður, en það eru langflestar Evrópuþjóðir og önnur helstu viðskiptalönd Íslands.