Nýr mannauðsstjóri LSR mun leiða uppbyggingu, þróun og framkvæmd mannauðsmála þar sem áhersla er lögð á menningu, vellíðan, frammistöðu og markvissa þróun í síbreytilegu starfsumhverfi.
Leitað er að einstaklingi sem á auðvelt með að vinna náið með stjórnendum, byggja upp traust og hrinda umbótum í framkvæmd með skýrum markmiðum og mælikvörðum.
Allar nánari upplýsingar má finna á Alfreð.is, auk þess sem þar er tekið við umsóknum. Umsóknarfrestur er til 2. mars næstkomandi.