Fara á efnissvæði
Innskrá
Fréttayfirlit

Nýjar eftirlaunaumsóknir teknar í notkun

23. mars 2026

LSR hefur nú tekið í notkun nýja útgáfu af eftirlaunaumsóknum, sem er mun einfaldari fyrir sjóðfélaga en fyrra umsóknarferli auk þess sem úrvinnsla verður einfaldari fyrir starfsfólk.

Kona að nota spjaldtölvu

Nýju eftirlaunaumsóknirnar byggja á nýju umsóknarkerfi LSR á Mínum síðum en fyrstu umsóknir kerfisins voru teknar í notkun undir lok síðasta árs. Umsóknirnar eru snjallar að því leyti að kerfið fyllir sjálfkrafa út þær upplýsingar sem þekktar eru um umsækjandann auk þess sem eingöngu eru birtar spurningar sem eru viðeigandi út frá réttindum viðkomandi sjóðfélaga.

Ef umsækjandinn á t.d. einungis réttindi í A-deild LSR birtast ekki spurningar sem eiga við um B-deild. Að sama skapi fylla sjóðfélagar í B-deild einungis út upplýsingar sem eru viðeigandi fyrir réttindi þeirra. Þar með verður umsóknin í flestum tilvikum mun einfaldari og skiljanlegri fyrir sjóðfélaga en fyrri umsókn, sem birti alla valmöguleika fyrir báðar deildir.

Eftir að umsókn hefur verið undirrituð skilar umsóknarkerfið gögnunum beint inn í kerfi sjóðsins, sem dregur úr innslætti gagna, minnkar villuhættu og einfaldar úrvinnslu starfsfólks.

Umsóknirnar eru aðgengilegar á bæði íslensku og ensku, sem léttir ferlið fyrir sjóðfélaga sem hafa ekki íslensku að móðurmáli.

Eftirlaunaumsóknir eru algengustu umsóknir LSR en ár hvert berast sjóðnum rúmlega 2.500 slíkar umsóknir. Þessi nýjung er því veruleg bæting á þjónustu LSR og stórt skref í stafrænni vegferð sjóðsins. Á næstu mánuðum verða enn fleiri tegundir umsókna fluttar yfir í nýja kerfið.