Sótt er um störfin í gegnum Alfreð.is og hvetjum við áhugasama til að senda okkur umsókn.
Sérfræðingur á fjármálasviði mun m.a. halda utan um uppgjör og frágang verðbréfaviðskipta auk greininga á verðbréfasafni sjóðsins auk ýmissa annarra verkefna. Þetta er fjölbreytt starf í miðvinnslu sem felur í sér mikil samskipti bæði innan sjóðsins og við ytri aðila. Umsóknarfrestur er til 5. febrúar.
Nánari upplýsingar á Alfred.is.
Sérfræðingur í upplýsingaöryggi mun gegna stöðu öryggisstjóra LSR og starfa innan áhættustýringar LSR. Viðkomandi mun m.a. bera ábyrgð á stjórnun upplýsingaöryggis, áhættumati og samhæfingu öryggis- og viðbragðsferla innan sjóðsins. Umsóknarfrestur er til 10. febrúar.
Nánari upplýsingar á Alfred.is.
LSR leitar einnig að öflugri og ábyrgri aðstoðarmanneskju í 50% starf í eldhúsi sjóðsins. Starfið felur í sér almenn störf í eldhúsinu í samstarfi við matráð auk afleysinga í fríum og forföllum. Vinnutími er að jafnaði frá kl. 10:00 til 14:00 alla virka daga. Umsóknarfrestur er til 10. febrúar.
Nánari upplýsingar á Alfred.is.
Hjá LSR starfa nú 65 manns í líflegu og jákvæðu vinnuumhverfi með hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi. Við hvetjum áhugasama til að sækja um og hlökkum til að taka á móti nýjum samstarfsfélögum!