Sjálfbærni hjá LSR
LSR tileinkar sér ábyrga starfshætti, með vönduð vinnubrögð, fagmennsku og frumkvæði að leiðarljósi.
Sjálfbærnistefna LSR lýsir megináherslum sjóðsins varðandi sjálfbærni og hvernig sjóðurinn tileinkar sér þær áherslur í starfsemi sinni. Stefnan tekur bæði til innri reksturs og fjárfestingarstarfsemi sjóðsins. Tilgangur stefnunnar er að veita skýran ramma út frá áherslum sjóðsins í sjálfbærni sem tekur til bæði verklags og viðhorf sjóðsins.
Mikilvægt er að hafa yfirsýn yfir UFS-þætti þeirra fjármálagerninga sem fjárfest er í svo hægt sé að greina helstu áhrif og áhættu. Með greinargóðri upplýsingagjöf UFS-mála getur sjóðurinn borið saman ólíkar fjárfestingar, greint tækifæri til úrbóta og þannig lagt mat á hvort fjárfestingar séu í samræmi við markmið sjóðsins um ábyrgar fjárfestingar með hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi.
Sjálfbærnistefna LSR
- Nær til innri starfsemi og fjárfestinga sjóðsins
- Umhverfisþættir, félagsþættir og stjórnarhættir
Ábyrgar fjárfestingar
LSR hefur hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi við mótun fjárfestingarstefnu og við ávöxtun eigna. Ein af þeim skyldum sem hvíla á LSR er að setja sér siðferðileg viðmið í fjárfestingum, sbr. 36. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Reglugerð Evrópuþingsins og -ráðsins (ESB) 2019/2088 hefur jafnframt verið innleidd í íslenskan rétt með lögum um sjálfbærniupplýsingagjöf á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar. Reglugerðinni er ætlað að tryggja samræmdar upplýsingar um hvernig aðilar á fjármálamarkaði meta áhættu tengda sjálfbærni og hvernig taka eigi tillit til helstu neikvæðra áhrifa sjálfbærniþátta við fjárfestingaákvarðanir.
Við mat á fjárfestingum eru greind möguleg neikvæð áhrif sem fjárfestingin kann að hafa, með hliðsjón af sjálfbærni- og fjárfestingarstefnu sjóðsins. LSR hefur mótað sér verklag um ábyrgar fjárfestingar en sjóðurinn gerir kröfu til þess að fyrirtæki sem hann fjárfestir í starfi í samræmi við samfélagsleg gildi, viðurkenndar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja og sýni ábyrgð í umhverfismálum. LSR er meðlimur UN PRI – viðmiðum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar (e. UN PRI – Principles for Responsible Investment) og hefur sjóðurinn þar með skuldbundið sig til að horfa til umhverfislegra þátta, félagslegra þátta og stjórnarhátta (UFS) við mat og ákvarðanir á fjárfestingum.
LSR hefur tileinkað sér viðmið PRI um ábyrgar fjárfestingar og innleiðir þær áherslur við mat og greiningu sjálfbærniupplýsinga.
Samstarf og viðmið
LSR horfir til alþjóðlegra viðmiða og samstarfs á sviði sjálfbærni. Sjóðurinn vill vera ábyrgur fjárfestir og hefur því innleitt og eflt sjálfbærniþætti sem styðja við fjárfestingarmarkmið og áherslur sjóðsins. Nánar er fjallað um samstarf sjóðsins á þessu sviði í sjálfbærnistefnu sjóðsins sem má finna hér efst á síðunni.
Umhverfislegir þættir, félagslegir þættir og stjórnarhættir (UFS)
Mikilvægur þáttur í því að fylgja eftir sjálfbærnistefnu er að greina UFS-upplýsingar og birta niðurstöður opinberlega. Í sjálfbærnistefnu hvetur LSR þau félög sem sjóðurinn fjárfestir í til að sýna gagnsæi og skýra frá því með opinberum hætti hvernig starfsemi félaganna samræmist viðurkenndum viðmiðum hvað varðar t.d. sjálfbæran rekstur. Hlutverk LSR sem fjárfestis er að greina þessar upplýsingar fyrir einstakar fjárfestingar og eignasafnið í heild sinni og skoða árangur af fjárfestingarstarfseminni.
Umhverfislegir þættir
Það er stefna sjóðsins að þau félög sem sjóðurinn fjárfestir í gæti að umhverfislegum áhrifum í starfsemi sinni, til dæmis hvað varðar orkunýtingu, kolefnisfótspor, líffræðilegan fjölbreytileika, vatnsnotkun og úrgangsstjórnun. Einnig að félög skilgreini hvernig tekist er á við loftslagsbreytingar með vísun í mótvægis- og aðlögunaraðgerðir. LSR leitast eftir því að félög gæti að umhverfislegum áhrifum og beiti stefnumarkandi verklagi til að sporna við neikvæðum áhrifum á umhverfi.
Félagslegir þættir
LSR leggur áherslu á jafnrétti í starfsemi sinni og setur heilbrigt og öruggt starfsumhverfi í forgang. Lögð er áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi, bæði hvað varðar starfsumhverfi og starfsanda, auk þess að samhugur, samstarf og gagnkvæm virðing ríki milli starfsfólks. Mannréttindi eru grundvallarréttindi og lögð er áhersla á að allt starfsfólk LSR sé metið að verðleikum og njóti jafnra tækifæra. Ennfremur er horft til þess að mannréttinda sé gætt í hvívetna vegna fjárfestingarstarfsemi sjóðsins með vísan í alþjóðalög og mannréttindasáttmála.
Stjórnarhættir
Góðir stjórnarhættir eru grunnstoð í rekstri LSR og tryggja faglega, gagnsæja og ábyrga meðferð á fjármunum sjóðfélaga. Horft er til samsetningar og uppbyggingar stjórna og stjórnendateyma hjá þeim félögum sem sjóðurinn fjárfestir í, auk þess sem mat er lagt á skilgreinda sjálfbærniferla, sjálfbærnieftirlit og eftirfylgni. Það er lykilatriði að bæði stjórnun sjóðsins og þau félög sem fjárfest er í byggi á viðurkenndum meginreglum um góða stjórnarhætti og viðskiptasiðferði.