Leiðbeiningar fyrir lífeyrisreiknivél
Lífeyrisreiknivél LSR getur gefið vísbendingar um áætlaðar eftirlaunagreiðslur út frá ýmsum breytum á borð við mánaðarlaunum, lífeyristökualdri og séreignarsparnaði. Hér má finna einfaldar leiðbeiningar um notkun hennar.
Í efsta hluta reiknivélarinnar eru lykilupplýsingarnar núverandi aldur, mánaðarlaun, hversu mikil lífeyrisréttindi þú hefur þegar áunnið þér hjá sjóðnum og hvort þú sért í jafnri eða aldurstengdri ávinnslu. Ef þú skoðar reiknivélina á Mínum síðum eru allar þessar upplýsingar fylltar út sjálfkrafa.
Í síðasta reitnum í þessari röð velur þú hvenær þú viljir hefja fulla eftirlaunatöku. Ef byrjað er að taka eftirlaun snemma verða greiðslurnar lægri en með hverju árinu sem lífeyristöku er seinkað hækka greiðslurnar.
Það nægir að nota þessa fimm reiti til að reikna út hver full eftirlaun úr A-deild yrðu á mánuði fyrir skatt. Áætlaðar eftirlaunagreiðslur sérðu í niðurstöðugluggunum „Áætlaðar niðurstöður“ og „Áætlaðar greiðslur á mánuði“ fyrir neðan reiknivélina.
Nánar er farið yfir aðra hluta reiknivélarinnar hér fyrir neðan auk þess sem neðst má finna ítarlegt sýnidæmi:
-
Sjóðfélögum býðst að taka hálf eftirlaun frá 60 ára aldri. Þá hefjast greiðslur á helmingi eftirlaunaréttinda en hinn helmingurinn geymist og eykst í samræmi við áframhaldandi iðgjaldagreiðslur og reglur sjóðsins um frestun eftirlaunagreiðslna.
Í vinstri dálkinum undir aðalvalinu getur þú kveikt á valmöguleikanum fyrir hálf eftirlaun til að sjá hvernig þetta gæti litið út fyrir þig. Ef þú ert að skoða reiknivélina á Mínum síðum, þar sem allar upplýsingar eru for-útfylltar þarftu bara að velja þrennt:
- Hvenær full eftirlaunataka hefst
- Hvenær hálf eftirlaunataka hefst
- Hvaða laun þú gerir ráð fyrir að vera með samhliða hálfum eftirlaunum
Í niðurstöðuglugganum sérðu þá áætlaðar eftirlaunagreiðslur út frá þeim forsendum sem þú valdir, fyrir annars vegar tímabilið sem þú færð hálf eftirlaun og hins vegar greiðslurnar eftir að þú ferð á full eftirlaun.
-
Sjóðfélagar í A-deild geta haldið áfram vinnu eftir að taka fullra eftirlauna hefst og safnað áfram réttindum í sjóðinn fram að sjötugu. Við 70 ára aldur eru eftirlaunin svo endurreiknuð með tilliti til þeirra iðgjalda sem borist hafa eftir að taka fullra eftirlauna hófst og greiðslurnar hækkaðar með tilliti til þeirra.
Í reiknivélinni getur þú séð hvernig þetta kæmi út fyrir þig með því að kveikja á valmöguleikanum „Vinna með fullum eftirlaunum“ í vinstri dálkinum. Ef þú ert að skoða reiknivélina á Mínum síðum, þar sem allar upplýsingar eru for-útfylltar þarftu bara að velja þrennt:
- Hvenær full eftirlaunataka hefst
- Hvaða laun þú gerir ráð fyrir að vera með samhliða fullum eftirlaunum
- Hversu lengi þú gerir ráð fyrir að greiða iðgjöld (þ.e. hvenær þú hyggst hætta að vinna)
Í niðurstöðuglugganum sérðu þá áætlaðar eftirlaunagreiðslur fyrir annars vegar tímabilið eftir að þú ferð á full eftirlaun og hins vegar greiðslurnar eftir endurútreikninginn við 70 ára aldur.
-
Sjóðfélögum í A-deild stendur til boða að greiða allt að 3,5% af skylduiðgjaldi sínu í Tilgreinda séreign, en lækka á móti iðgjaldagreiðslur í samtryggingarsjóð. Þannig má fá aukinn sveigjanleika í greiðslum við starfslok en á móti lækka fastar, mánaðarlegar greiðslur til æviloka.
Áhrifin af því að safna í Tilgreinda séreign hjá LSR má reikna með því að kveikja á Tilgreindri séreign í miðjudálki reiknivélarinnar. Einnig má sjá hvernig eftirlaunagreiðslur breytast ef byrjað yrði að safna í Tilgreinda séreign, eins og útskýrt er hér neðar.
Þar eru fimm reitir sem hægt er að velja:
- Núverandi inneign (ef þú átt nú þegar tilgreinda séreign hjá LSR er inneign forskráð í reiknivélinni á Mínum síðum)
- Hvenær reglulegar útgreiðslur eiga að hefjast (allt frá 62 ára aldri)
- Hvað þú vilt dreifa greiðslunum yfir langan tíma
- Iðgjaldaprósentuna sem þú vilt að renni í tilgreinda séreign (3,5% er hámarkið)
- Hversu mikilli áætlaðri ávöxtun þú gerir ráð fyrir
Undir áætluðum niðurstöðum birtast þá upplýsingar um áætlaðar, mánaðarlegar útgreiðslur úr tilgreindri séreign ásamt áætlaðri heildarupphæð alls tímabilsins:
Í grafinu fyrir neðan birtast áætlaðar mánaðarlegar greiðslur jafnframt myndrænt, bæði eftirlaunagreiðslur sem greiðast til æviloka og greiðslur úr tilgreindri séreign miðað við þínar forsendur:
Hér fyrir ofan má t.d. sjá að valið hefur verið að dreifa greiðslum úr tilgreindri séreign yfir fimm ár, þar af tvö ár áður en eftirlaunataka hefst og svo þrjú ár eftir að eftirlaunataka hefst. Á grafinu er einnig birt brotalína en hún sýnir þér hversu há eftirlaunin myndu verða ef ekki yrði safnað í tilgreinda séreign. Þannig má með einföldum hætti sjá áhrifin sem tilgreind séreign hefur á ævilangar eftirlaunagreiðslur.
Með því að setja bendilinn yfir súlurnar má svo sjá sundurliðaðar krónutölur fyrir mánaðarlegar greiðslur út frá gefnum forsendum:
-
Allir launþegar hafa kost á að safna í séreignarsparnað. Þá greiðir launþeginn 2-4% af launum sínum í sparnaðinn en á móti greiðir launagreiðandinn 2% viðbótariðgjald í sparnaðinn, sem er bein launahækkun.
Í reiknivélinni má sjá áhrifin af því að safna í séreign hjá LSR með því að kveikja á séreignardálkinum lengst til hægri.
Þar eru fylltir út fimm reitir:
- Núverandi inneign (ef þú átt nú þegar séreign hjá LSR er inneign forskráð í reiknivélinni á Mínum síðum)
- Hvenær reglulegar útgreiðslur eiga að hefjast (allt frá 60 ára aldri)
- Hvað þú vilt dreifa greiðslunum yfir langan tíma
- Hversu hátt hlutfall af launum þú vilt greiða í séreign (2-4% – svo bætist 2% mótframlag launagreiðanda við)
- Hversu mikilli áætlaðri ávöxtun þú gerir ráð fyrir
Undir áætluðum niðurstöðum birtast þá upplýsingar um áætlaðar, mánaðarlegar útgreiðslur úr séreign ásamt áætlaðri heildarupphæð alls tímabilsins.
Í grafinu fyrir neðan birtast áætlaðar mánaðarlegar greiðslur jafnframt myndrænt, bæði eftirlaunagreiðslur sem greiðast til æviloka og greiðslur úr séreign miðað við þínar forsendur:
Hér fyrir ofan má t.d. sjá að valið hefur verið að dreifa greiðslum úr séreign yfir tíu ár, tvö ár áður en eftirlaunataka hefst og átta ár eftir það.
Með því að setja bendilinn yfir súlurnar má svo sjá sundurliðaðar krónutölur fyrir áætlaðar mánaðarlegar greiðslur.
-
Jóna er 52 ára og er með 890.000 kr. í mánaðarlaun. Hún er í aldurstengdri ávinnslu og hefur áunnið sér 450.000 kr. miðað við að hefja eftirlaunatöku 67 ára. Jóna hefur jafnframt safnað 6.500.000 kr. í séreign hjá LSR þar sem hún greiðir 4% framlag af launum. Allt þetta er forskráð þegar hún skoðar reiknivélina á Mínum síðum (gulir kassar á mynd).
Jóna er að byrja að skipuleggja starfslok sín og langar að minnka við sig vinnu síðustu árin en halda svipuðum tekjum. Ein leið til þess væri að hefja töku á hálfum eftirlaunum við 63 ára aldur og minnka vinnuna niður í 75%.
Hún gæti jafnframt byrjað að safna í Tilgreinda séreign og fengið greitt úr henni frá 63 ára aldri fram að töku fullra eftirlauna, sem Jóna stefnir á að verði við 68 ára aldur. Jóna veltir líka fyrir sér að vinna áfram 50% vinnu með fullum eftirlaunum fram að sjötugu. Séreignina hyggst Jóna síðan nýta til að auka tekjurnar frá sjötugu, eftir að hún hættir að vinna.
Þá fyllir Jóna reiknivélina út með eftirfarandi hætti (rauðir kassar á mynd):
- „Full eftirlaunataka hefst“ er sett í 68 ára
- Hálf eftirlaun: Kveikt er á möguleikanum „Hálf eftirlaun“
- „Hálf eftirlaunataka hefst“ er sett í 63 ára
- „Laun samhliða hálfum eftirlaunum“ er sett í 667.500 (75% af 890.000 kr., sem eru núverandi laun)
- Vinna með fullum eftirlaunum: Þar sem Jóna ætlar að vinna 50% vinnu með fullum eftirlaunum (68 til 70 ára) er kveikt á möguleikanum „Vinna með fullum eftirlaunum“
- „Laun samhliða fullum eftirlaunum“ er sett í 445.000 (50% af 890.000 kr., sem eru núverandi laun)
- „Iðgjöld greiðast til“ er sett í 70 ára
- Tilgreind séreign: Í miðjudálkinum er kveikt á „Tilgreind séreign“
- Núverandi inneign er höfð 0 þar sem Jóna hefur ekki verið að safna í Tilgreinda séreign hingað til.
- „Útborgun hefst“ er sett í 63 ára
- „Útborgunartími“ er settur í 5 ár
- Iðgjaldaprósenta er höfð í 3,5% þar sem Jóna ætlar að fullnýta söfnun í Tilgreinda séreign héðan í frá
- „Áætluð ávöxtun“ er höfð í 3,5%, sem er nokkuð nálægt 10 ára meðaltali raunávöxtunar Verðbréfaleiðar í Séreign LSR
- Séreign: Í séreignardálkinum lengst til hægri er „Útborgun hefst“ sett í 70 ára
- „Útborgunartími“ er settur í 12 ár
- „Þitt framlag“ er óbreytt
- „Áætluð ávöxtun“ er höfð í 3,5%, sem er nokkuð nálægt 10 ára meðaltali raunávöxtunar Verðbréfaleiðar í séreign LSR
Þá má sjá niðurstöðurnar í gluggunum fyrir neðan:
Undir „Áætlaðar niðurstöður“ sést að mánaðarlegu greiðslurnar yrðu eftirfarandi:
- Hálfu eftirlaunin sem greiðast frá 63 til 68 ára eru áætluð 210.877 kr.
- Fullu eftirlaunin frá 68 til 70 ára eru áætluð 530.496 kr.
- Eftir 70 ára hækka áætluð eftirlaun í 538.408 kr. vegna viðbótariðgjaldanna sem Jóna greiðir fyrir 50% vinnu frá 68 til 70 ára.
- Greiðslur úr Tilgreindri séreign eru áætlaðar 114.031 kr. á mánuði yfir 5 ára tímabil (63 til 68 ára), samtals 6.841.860 kr.
- Greiðslur úr Séreign eru áætlaðar 225.947 á mánuði yfir 12 ára tímabil (70 til 82 ára), samtals 32.536.368 kr.
Undir „Áætlaðar greiðslur á mánuði“ má sjá mánaðarlegar greiðslur myndrænt eftir árum:
Með því að setja bendilinn á hverja súlu má sjá áætlaða samanlagða upphæð á mánuði. Frá 63 til 68 ára er áætlað að samanlögð greiðsla frá LSR fyrir hálf eftirlaun og tilgreinda séreign verði 324.908 kr. Þar sem Jóna ætlar að vera í 75% vinnu samhliða myndu áætlaðar samanlagðar launa- og eftirlaunatekjur hennar á þessu árabili verða 992.402 kr. á mánuði (667.500 launatekjur + 324.908 eftirlaun og tilgreind séreign) og tekjur Jónu myndu þannig aukast þrátt fyrir að hún minnki við sig vinnu á þessu tímabili.
Á árunum frá 68–70 ára fær Jóna full eftirlaun, sem er áætlað að verði 530.496 kr. Þar sem hún ætlar að vinna 50% starf á þessum tíma fær hún 445.000 kr. í laun og áætlaðar heildartekjur hennar yrðu þannig 975.496 kr. á mánuði.
Eftir að Jóna hættir að vinna við 70 ára aldur byrja greiðslurnar úr Séreign LSR, auk þess sem eftirlaunagreiðslurnar hækka lítillega. Þá yrðu áætlaðar heildartekjur hennar 764.355 kr. á mánuði til 82 ára aldurs.
Frá því að séreignargreiðslum lýkur tækju svo við eftirlaun til æviloka, sem áætlað er að verði 538.408 kr. á mánuði.