Fara á efnissvæði
Innskrá
Fréttayfirlit

Áfram hægt að greiða séreign inn á fasteignalán

22. júní 2026

Skattfrjálsar greiðslur séreignar inn á fasteignalán hafa verið festar í sessi með nýjum lögum sem taka gildi í haust og verða afturvirk til 1. janúar.

Reykjavik

Í síðustu viku samþykkti Alþingi ný lög sem festa í sessi greiðslur séreignar inn á fasteignalán. Samkvæmt þeim geta allir nýtt séreign til að greiða inn á fasteignalán í samtals tíu ár. Hámarksgreiðslur eru 500.000 kr. á hvern einstakling á ári og ekki er sérstök hámarksgreiðsla fyrir hjón eða sambýlisfólk eins og áður var. Hámarkið mun breytast á hverju ári í samræmi við vísitölu neysluverðs.

Lögin taka gildi 1. október á þessu ári en munu gilda afturvirkt frá 1. janúar 2026. Þannig verður hægt að ráðstafa öllum séreignargreiðslum ársins inn á fasteignalán upp að 500.000 kr. á hvern einstakling þótt greiðslurnar verði ekki framkvæmdar fyrr en eftir 1. október.

Skatturinn heldur utan um ráðstöfun séreignar inn á fasteignalán og er sjóðfélögum bent á að leita þangað varðandi frekari upplýsingar.