Þjónusta LSR verður með óhefðbundnu sniði föstudaginn 30. október vegna starfsdags sjóðsins. Afgreiðsla sjóðsins að Engjateigi 11 verður þá opin milli kl. 09:00 og 12:00.
Opið verður fyrir símaþjónustu á hefðbundnum opnunartíma milli kl. 09:00 og 14:00, en símaþjónustan verður þó með takmörkuðu sniði frá kl. 12:00 til 14:00.
Við bendum sjóðfélögum á að nýta rafræna þjónustu sjóðsins á Mínum síðum þar sem finna má allar helstu upplýsingar sjóðfélaga ásamt rafrænum umsóknum sjóðsins.
Einnig má senda okkur skilaboð í gegnum síðuna Hafa samband, sem verður svarað eftir helgi.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.