Fara á efnissvæði
Innskrá
Fréttayfirlit

Fréttabréf LSR og yfirlit send til sjóðfélaga

21. september 2026

LSR sendir nú út yfirlit til sjóðfélaga fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Með yfirlitunum fylgir fréttabréf LSR sem inniheldur m.a. upplýsingar um afkomu sjóðsins á síðasta ári.

Kona les fréttabréf á fartölvu

LSR sendir sjóðfélögum yfirlit á hálfs árs fresti þar sem tilteknar eru m.a. iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga og launagreiðenda og greiðslur til sjóðfélaga. Í A-deild og B-deild má einnig sjá áunnin lífeyrisréttindi og áætlun um lífeyrisréttindi ef greiðslur halda áfram. Sjóðfélagar í Séreign fá upplýsingar um núverandi inneign og ávöxtun á fyrstu sex mánuðum ársins.

Með yfirlitunum fylgir einnig fréttabréf LSR, þar sem fjallað er m.a. um afkomu sjóðsins á árinu 2025, veittar upplýsingar um séreignarsjóði LSR og sagt frá nýjungum á vef sjóðsins. Þá fylgir einnig rekstraryfirlit sjóðsins fyrir árið 2025. Fréttabréfið má einnig finna hér neðst í fréttinni.

Rétt eins og undanfarin ár eru yfirlitin send út rafrænt. Hægt er að finna þau á Mínum síðum LSR auk þess sem sjóðfélagar fá þau send í gegnum Ísland.is. Við hvetjum sjóðfélaga til að kynna sér yfirlitin og ganga úr skugga um að allar iðgjaldagreiðslur hafi skilað sér til sjóðsins á tímabilinu.

Fréttabréf LSR 2026