Fyrr á árinu var heimild um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán gerð varanleg með nýjum lögum. Áður hafði heimildin verið veitt tímabundin og framlengd reglulega þar til hún rann út 31. desember 2025.
Í vikunni var opnað fyrir umsóknir um ráðstöfun séreignarsparnaðar samkvæmt nýja fyrirkomulaginu á Ísland.is. Hægt er að sækja um ráðstöfun afturvirkt fyrir allt árið 2026 en til að gera það þarf að senda inn umsókn fyrir 1. desember næstkomandi.
Samkvæmt nýju lögunum getur hver einstaklingur ráðstafað allt að 500.000 kr. á ári inn á húsnæðislán eða í samtals 12 mánuði á hverju ári í 10 ár, samtals í 120 mánuði. Greiðslur fyrri ára eru einnig taldar með. Við umsóknarferlið sést hversu mikla heimild hver og einn á enn ónýtta.