Fara á efnissvæði
Innskrá
Fréttayfirlit

Tímabundnar breytingar á aðalinngangi

21. september 2026

Framkvæmdir standa nú yfir á húsnæði LSR sem miða að því að bæta móttöku gesta. Vegna framkvæmdanna hefur aðalinngangur sjóðsins verið færður tímabundið á suðurhlið byggingarinnar þar sem sett hefur verið upp bráðabirgðamóttaka.

Mynd sem sýnir tímabundinn inngang

Á myndinni hér fyrir ofan sést inngangurinn sem notaður verður næstu vikurnar.

Áætlað er að ný og endurbætt móttaka LSR verði opnuð í lok október. Með henni batnar öll aðstaða þjónusturáðgjafa LSR sem munu geta tekið enn betur á móti gestum en áður.

Á meðan bráðabirgðainngangurinn er í notkun eru bílastæðin fyrir framan húsið ætluð gestum LSR. Þar hefur jafnframt verið merkt sérstakt bílastæði fyrir hreyfihamlaða. 

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem breytingarnar kunna að valda.