Í ársskýrslunni er m.a. birt ávarp Jökuls Heiðdal Úlfssonar stjórnarformanns LSR, sem segir afkomu sjóðsins á árinu 2025 hafa verið ágæta við erfiðar aðstæður á mörkuðum bæði hér heima og erlendis. Eignir sjóðsins jukust um 107 milljarða króna á árinu og hafa heildareignir sjóðsins aldrei verið jafn miklar en þær stóðu í 1.664 milljörðum króna í árslok.
Í sjálfbærniskýrslunni er farið ítarlega yfir starfsemi sjóðsins á sviði sjálfbærni, bæði hvað varðar eignasafn hans og innri rekstur.