Fara á efnissvæði
Innskrá
Fréttayfirlit

Bráðabirgðagreiðslumat á lsr.is

10. nóvember 2026

Sjóðfélögum sem eru að íhuga lántöku hjá LSR býðst nú að framkvæma bráðabirgðagreiðslumat á vef sjóðsins. Ferlið er stutt, einfalt og ókeypis og gefur góða vísbendingu um mögulegt svigrúm til lántöku hjá LSR út frá tekjum og gjöldum.

Bradabirgdagreidslumat

Bráðabirgðagreiðslumatið er í fimm einföldum skrefum þar sem m.a. er valin tegund láns, veittar upplýsingar um tekjur og eigið fé, fjölda bíla á heimili, barna undir 18 ára og gefnar upp reglulegar greiðslur helstu skuldbindinga. 

Á niðurstöðuskjánum birtist svo áætluð greiðslugeta á mánuði og hámarksfjárhæð þess láns sem gæti staðið til boða hjá LSR út frá þeim forsendum sem gefnar voru upp. 

Bráðabirgðagreiðslumatið getur gefið góða vísbendingu um þá lánsupphæð sem gæti staðið sjóðfélögum LSR til boða en kemur ekki í stað formlegs greiðslumats. Slíkt greiðslumat er hluti af umsóknarferli fasteignaláns hjá LSR og er framkvæmt af Creditinfo. Þar sem greiða þarf fyrir slíkt greiðslumat er hins vegar góður kostur að geta framkvæmt ókeypis bráðabirgðagreiðslumat til að ekkert óvænt komi upp í sjálfu umsóknarferlinu.

Opna bráðabirgðagreiðslumat