Það eru ráðgjafafyrirtækið Mercer og samtökin CFA Institute sem standa að rannsókninni, sem gerð er árlega. Lífeyriskerfunum eru gefin stig út frá ýmsum þáttum og í ár eru það einungis Holland og Danmörk sem fá fleiri stig en Ísland. Holland er efst með 85,5 stig, Danmörk fær 84,1 stig en Ísland fylgir fast á eftir með 84,0 stig.
Mercer metur lífeyriskerfin út frá þremur meginþáttum. Það eru nægjanleiki lífeyrisréttinda, sjálfbærni kerfisins til lengri tíma og traust til kerfisins. Ísland fær einkunnina A í öllum þessum þremur þáttum, sem þýðir að kerfið veitir góð lífeyrisréttindi, býr yfir sterkri sjálfbærni og nýtur trausts meðal sjóðfélaga.
Lífeyrisvísitala Mercer byggir á gögnum frá OECD, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og öðrum alþjóðastofnunum auk upplýsinga sem sérfræðingar afla í hverju landi. Vísitalan er ein sú virtasta á sínu sviði og veitir mikilvæga innsýn í stöðu, sjálfbærni og framtíðarþol lífeyriskerfa um allan heim.
Niðurstöðurnar staðfesta enn á ný sterka stöðu íslenska lífeyriskerfisins í alþjóðlegum samanburði og getu þess til að veita sjóðfélögum trygg réttindi til framtíðar.
Hér má finna ítarlega umfjöllun um niðurstöður rannsóknarinnar.