Fara á efnissvæði
Innskrá
Fréttayfirlit

Viðurkenning Jafnvægisvogarinnar í sjöunda sinn

19. október 2026

LSR hefur fengið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar fyrir árið 2026 og er það í sjöunda sinn sem sjóðurinn hlýtur viðurkenninguna.

Handhafar Jafnvægisvogarinnar

Viðurkenning Jafnvægisvogarinnar er veitt fyrirtækjum og stofnunum sem uppfylla markmið verkefnisins um að hlutfall hvors kyns í framkvæmdastjórn sé að minnsta kosti 40%. Það er Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, sem stendur að verkefninu sem hefur það markmið að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar í atvinnulífinu.

Í ár hlutu 163 fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir viðurkenninguna og fjölgaði þeim um 27,3% frá síðasta ári. Yfirskrift viðurkenningarhátíðarinnar í ár var „Losum um hnútinn“ og kom þar m.a. fram að þrátt fyrir að ákveðnum árangri hafi verið náð í jafnrétti síðustu áratugi séu konur enn einungis 21,3% framkvæmdastjóra fyrirtækja á landinu. Af þeim sem ráðnir voru í framkvæmdastjórastöður árið 2025 í 300 stærstu fyrirtækjum landsins voru jafnframt 71% karlar.

LSR er stolt af því að hafa hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar, nú í sjöunda sinn. Sjóðurinn leggur mikla áherslu á jafnrétti í sínum störfum, hefur sett sér jafnlaunastefnu og starfar í samræmi við jafnréttisáætlun. Þá hefur LSR verið með jafnlaunavottun frá 2021.

Nánari upplýsingar um Jafnvægisvogina og verkefnið má finna á vef FKA.