Fréttir og tilkynningar
Dómari í eigin sök?
4. nóvember 2026
Harpa Jónsdóttir, framkvæmdastjóri LSR, fjallaði í vikunni um skipan tilnefningarnefnda í grein á Innherja og mikilvægi þess að nefndirnar séu óháðar stjórnum félaga. Greinin er hér meðfylgjandi.
Íslenska lífeyriskerfið meðal þeirra bestu í heimi
23. október 2026
Íslenska lífeyriskerfið fær þriðju hæstu einkunnina í alþjóðlegri úttekt á lífeyriskerfum sem nær til 55 ríkja um allan heim. Þetta er sjötta árið í röð sem Ísland fær toppeinkunn í úttektinni.
Viðurkenning Jafnvægisvogarinnar í sjöunda sinn
19. október 2026
LSR hefur fengið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar fyrir árið 2026 og er það í sjöunda sinn sem sjóðurinn hlýtur viðurkenninguna.
Séreignarsparnaður inn á húsnæðislán aftur í boði
16. október 2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán á nýjan leik. Frestur til að sækja um ráðstöfun fyrir allt árið 2026 rennur út 1. desember næstkomandi.
Fréttabréf LSR og yfirlit send til sjóðfélaga
21. september 2026
LSR sendir nú út yfirlit til sjóðfélaga fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Með yfirlitunum fylgir fréttabréf LSR sem inniheldur m.a. upplýsingar um afkomu sjóðsins á síðasta ári.
Tímabundnar breytingar á aðalinngangi
21. september 2026
Framkvæmdir standa nú yfir á húsnæði LSR sem miða að því að bæta móttöku gesta. Vegna framkvæmdanna hefur aðalinngangur sjóðsins verið færður tímabundið á suðurhlið byggingarinnar þar sem sett hefur verið upp bráðabirgðamóttaka.
Breyttur opnunartími 4. og 7. september
1. september 2026
Vegna uppfærslu á upplýsingakerfum LSR dagana 4.–7. september verður opnunartími sjóðsins styttur föstudaginn 4. september og mánudaginn 7. september. Jafnframt má búast við truflunum á þjónustu sjóðsins á vefnum yfir helgina.
Vextir fasteignalána lækka
27. ágúst 2026
Vextir á nýjum fasteignalánum LSR lækka úr 4,5% í 4,4% frá og með fimmtudeginum 27. ágúst 2026. Lánin eru verðtryggð með föstum vöxtum út lánstímann.
Það skiptir máli að velja rétta séreign
15. júlí 2026
Séreign er frábær sparnaðarleið en eins og nýleg rannsókn sýnir fram á er algengt að fólk velji ekki réttu sparnaðarleiðina. Harpa Jónsdóttir framkvæmdastjóri LSR skrifaði grein í Vísi þar sem þetta er útskýrt.
Áfram hægt að greiða séreign inn á fasteignalán
22. júní 2026
Skattfrjálsar greiðslur séreignar inn á fasteignalán hafa verið festar í sessi með nýjum lögum sem taka gildi í haust og verða afturvirk til 1. janúar.