Ársfundur LSR haldinn 25. maí

10.05.2021

Ársfundur LSR verður haldinn kl. 15:00 þriðjudaginn 25. maí 2021 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2. Fundurinn verður opinn öllum sjóðfélögum og launagreiðendum.

Á fundinum verður m.a. gerð grein fyrir skýrslu stjórnar LSR, ársreikningi, tryggingafræðilegri úttekt og fjárfestingarstefnu.

Ársreikninga LSR fyrir árið 2020 og upplýsingar um starfsemi á árinu má finna í nýlegri frétt hér á lsr.is .