Breytingar á vöxtum fasteignalána LSR

09.11.2023

Frá og með 9. nóvember hækka vextir á nýjum fasteignalánum LSR. Hækkunin er á bilinu 0,5 til 0,8 prósentustig, mismikil á milli lánavalkosta.

Vextirnir breytast með eftirfarandi hætti:

  • Óverðtryggðir vextir hækka um 0,5 prósentustig og verða 9,90%. Vextir óverðtryggðra sjóðfélagalána hjá LSR eru fastir í 36 mánuði í senn.
  • Verðtryggðir breytilegir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,8 prósentustig og verða 4,0%. Verðtryggðir breytilegir vextir hjá LSR eru fastir til 3 ára í senn.
  • Verðtryggðir fastir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,5 prósentustig og verða 4,0%. Verðtryggðir fastir vextir hjá LSR haldast óbreyttir út allan lánstímann.

Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR.