Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

15.12.2023

Frá og með 15. desember hækka vextir á nýjum verðtryggðum fasteignalánum LSR um 0,1 prósentustig. Engar breytingar verða á óverðtryggðum lánum.

Vextirnir breytast með eftirfarandi hætti:

Verðtryggðir breytilegir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,1 prósentustig og verða 4,1%. Verðtryggðir breytilegir vextir hjá LSR eru fastir til 3 ára í senn.

Verðtryggðir fastir vextir nýrra fasteignalána hækka sömuleiðis um 0,1 prósentustig og verða 4,1%. Verðtryggðir fastir vextir hjá LSR haldast óbreyttir út allan lánstímann.

Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR.