Fjögur ný til liðs við LSR

20.09.2023

LSR hefur ráðið fjóra nýja starfsmenn sem efla og styrkja sjóðinn í þeim verkefnum sem framundan eru. Þetta eru þau Elín Hrund Búadóttir, Helgi Freyr Ásgeirsson, Katrín Kristjana Hjartardóttir og María Björk Baldursdóttir.

Elin-Hrund_1695204879344Elín Hrund er ráðin í starf forritara á sviðinu Stafræn þróun og rekstur. LSR hefur undanfarin misseri unnið markvisst að því að auka áherslu á nýtingu stafrænna lausna í starfsemi sinni og er ráðning Elínar liður í því starfi. Elín er með BSc-gráðu í tölvunarfræði frá HR, auk þess sem hún hefur lokið MSc-prófi í líf- og matvælatækni frá LTH í Lundi og BSc-prófi í matvælafræði frá HÍ. Hún hefur áður starfað hjá Controlant sem hópstjóri, hjá Alvotech við tölvukerfi og gæðamál og Actavis við gæðamál.


Helgi-Freyr_1695204921365

Helgi Freyr kemur í nýtt starf sérfræðings hjá áhættustýringu LSR, þar sem þekking hans á tryggingastærðfræði mun koma að góðum notum. Helgi er með MSc-gráðu í trygginga- og fjármálastærðfræði frá Háskólanum í Amsterdam auk þess að vera með BSc-gráðu í stærðfræði frá HÍ. Helgi hefur síðustu ár unnið við stærðfræðikennslu hjá MR, en unnið í hlutastarfi hjá LSR.



Katrin-Kristjana_1695204921358


Katrín Kristjana hefur tekið stöðu verkefnastjóra með áherslu á umbótaverkefni sem snúa einkum að þjónustu sjóðsins. Katrín starfaði áður sem framkvæmdastjóri Sambands íslenskra framhaldsskólanema auk þess að hafa starfað sem verkefnastjóri hjá bæði Icelandair og WOW Air. Þá hefur Katrín sinnt stundakennslu hjá Háskóla Íslands. Hún er með MSc-gráðu í stjórnun og stefnumótun frá HÍ og BA-gráðu í stjórnmálafræði frá HÍ.



Maria-Bjork_1695204921349

María Björk er ráðin sem sérfræðingur á fjármálasviði þar sem hún mun sinna fjölbreyttum verkefnum innan sviðsins, á borð við áætlana- og skýrslugerð, ásamt því að taka þátt í framþróunarverkefnum sjóðsins. María Björk starfaði áður við endurskoðun hjá KPMG auk þess sem hún hefur einnig unnið hjá EY og CreditInfo. Hún er með MAcc-gráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá HR og BS-gráðu í viðskiptafræði frá HÍ.