Minnum á ársfund LSR 24. maí

22.05.2023

Ársfundur LSR verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica næstkomandi miðvikudag, 24. maí kl. 15:00. Á fundinum verður m.a. fjallað um samþykktarbreytingar, en undir þeim lið verða kynntar heildaraðgerðir sjóðsins til að bregðast við hækkandi lífaldri.

Eins og fram kom á sjóðfélagafundi LSR 22. febrúar síðastliðinn þarf LSR að dreifa réttindum sjóðfélaga á fleiri vænt lífár en áður hafði verið gert ráð fyrir til að bregðast við hækkandi lífaldri. Þá voru kynntar aðgerðir sjóðsins til að koma framtíðarstöðu réttinda í jafnvægi, en á aðalfundinum nú verða kynntar þær aðgerðir sem ráðast þarf í til að áunnin réttindi dugi til að greiða sjóðfélögum lífeyri alla ævi.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

Skýrsla stjórnar
Ársreikningur 2022
Fjárfestingarstefna
Tryggingafræðilegar úttektir
Kynning á samþykktarbreytingum
Önnur mál 

Fundurinn á Hilton Reykjavík Nordica er opinn öllum sjóðfélögum, auk þess sem sent verður út frá fundinum á netinu. Hægt verður einnig að taka þátt í fundinum rafrænt, auk þess sem upptaka verður gerð aðgengileg á lsr.is að fundinum loknum.

Óskað er eftir að gestir skrái þátttöku á fundinn hér fyrir neðan, hvort sem það er mæting á sjálfan fundinn eða rafræn þátttaka.