LSR lækkar lántökukostnað 18. febrúar 2016

18.02.2016

Stjórn LSR hefur ákveðið að lækka lántökukostnað sjóðfélagalána og verður lántökugjald nú 0,5% af lánsfjárhæð. Lántökugjald var áður 0,75%. Hagstæð kjör og sveigjanlegir skilmálar gera sjóðfélagalán hjá LSR að góðum kosti. Engin uppgreiðsluþóknun er tekin af sjóðfélagalánum.