Vaxtabreyting á verðtryggðum lánum

31.08.2023

Frá og með 31. ágúst hækka vextir á nýjum verðtryggðum fasteignalánum LSR um 0,4 prósentustig. Engar breytingar verða á óverðtryggðum lánum.

Vextirnir breytast með eftirfarandi hætti:

Verðtryggðir breytilegir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,4 prósentustig og verða 3,2%. Verðtryggðir breytilegir vextir hjá LSR eru fastir til 3 ára í senn.

Verðtryggðir fastir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,4 prósentustig og verða 3,5%. Verðtryggðir fastir vextir hjá LSR haldast óbreyttir út allan lánstímann.

Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR.