Vextir óverðtryggðra lána hækka í 4,6%

05.11.2021

Vextir óverðtryggðra lána LSR munu hækka úr 4,5% í 4,6% frá og með mánudeginum 8. nóvember 2021. Vextir óverðtryggða sjóðfélagalána hjá LSR eru fastir í 36 mánuði í senn.

Vextir á verðtryggðum lánum breytast ekki, en þeir eru nú annars vegar 3,0% á lánum sem eru með fasta vexti út allan lánstímann og 2,3% á lánum sem bera breytilega vexti, þ.e. breytast á 36 mánaða fresti. Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR.