Afgreiðsla LSR lokuð vegna sóttvarnaaðgerða / Closing of offices

04.01.2022

Vegna hertra sóttvarnaaðgerða er afgreiðsla LSR lokuð tímabundið. Starfsfólk mun áfram sinna verkefnum og þjónustu við sjóðfélaga en gera má ráð fyrir því að afgreiðsla mála kunni að lengjast lítillega. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem það kann að valda.

Á meðan á lokuninni stendur hvetur LSR sjóðfélaga til að nýta rafræna þjónustu og leita upplýsinga í síma eða með tölvupósti.

Símaþjónusta er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9:00 til 16:00 og föstudaga frá kl. 9:00 til 15:00 í síma 510 6100.

Hægt er að nálgast flestar upplýsingar um lífeyrisréttindi og lán á Mínum síðum á vef LSR. Að auki er hægt að sækja um lífeyri og lán ásamt því að skila inn eyðublöðum með rafrænum skilríkjum .

Hægt er að koma gögnum til LSR í póstkassa sem staðsettur er í anddyri sjóðsins.

Gögn til viðskiptamanna verða send í pósti, en þó er mögulegt að fá lánaskjöl afhent milli kl. 9-12 og 13-15 á virkum dögum. Lántakar fá tilkynningu með tölvupósti um að skjöl séu tilbúin og þar eru einnig birtar leiðbeiningar um hvernig hægt sé að fá þau afhent.

Hægt er að senda fyrirspurnir í tölvupósti á eftirfarandi netföng:

Fyrir lífeyrismál: lifeyrir@lsr.is
Fyrir iðgjöld og séreign: idgjold@lsr.is
Fyrir lánamál: lan@lsr.is
Almennar fyrirspurnir: lsr@lsr.is

LSR offices closed
Due to stricter COVID-19 measures the LSR offices are closed until further notice. Daily operations of LSR will continue but some delays may be expected. We apologize for any inconvenience this may cause.

Customers are encouraged to use the fund's digital services and can as before obtain information through telephone or email. Personal information continues to be available on our membership page Mínar síður, where you can also apply for pension payments, loans and securely provide supporting documents to LSR.

Telephone services are available Monday-Thursday from 9:00 – 16:00 and Fridays from 9:00 - 15:00 at 510 6100.

Additionally, documents can be dropped off in a mailbox located in the entrance lobby of the fund.

Documents will be posted to recipients, although it is possible to receive loan documents at LSR between 9 AM to 12 PM and 1 PM to 3 PM on weekdays. When the documents are ready those involved will be notified by e-mail, where instructions for document pick-up will be available.

All questions and concerns can be sent to the following email addresses:

For general inquiries: lsr@lsr.is
For pension inquiries: lifeyrir@lsr.is
For loan inquiries: lan@lsr.is
For inquiries on contributions and private pension: idgjold@lsr.is