Breyting á vöxtum verðtryggðra lána
Frá og með 30. júní hækka vextir á nýjum verðtryggðum fasteignalánum LSR um 0,2 prósentustig. Engar breytingar verða á óverðtryggðum lánum.
Vextirnir breytast með eftirfarandi hætti:
Verðtryggðir breytilegir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,2 prósentustig og verða 2,8%. Verðtryggðir breytilegir vextir hjá LSR eru fastir til 3 ára í senn.
Verðtryggðir fastir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,2 prósentustig og verða 3,1%. Verðtryggðir fastir vextir hjá LSR haldast óbreyttir út allan lánstímann.
Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR.