Breytingar á vöxtum LSR
Frá og með 1. desember hækka vextir á nýjum fasteignalánum LSR. Vextir allra lánavalkosta sjóðsins hækka um 0,1 prósentustig auk þess sem breytilegir vextir á lánum sem gefin voru út fyrir 15. janúar 2019 hækka um 0,3 prósentustig.
Vextirnir breytast með eftirfarandi hætti:
- Verðtryggðir fastir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,1 prósentustig og verða 2,8%. Verðtryggðir fastir vextir hjá LSR haldast óbreyttir út allan lánstímann.
- Verðtryggðir breytilegir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,1 prósentustig og verða 2,4%. Verðtryggðir breytilegir vextir hjá LSR eru fastir til 3 ára í senn.
- Óverðtryggðir vextir hækka um 0,1 prósentustig og verða 7,8%. Vextir óverðtryggðra sjóðfélagalána hjá LSR eru fastir í 36 mánuði í senn.
- Jafnframt munu vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum sem gefin voru út fyrir 15. janúar 2019 hækka um 0,3 prósentustig og verða 1,8%. Sú breyting tekur gildi 1. janúar.