Breytingar á vöxtum LSR

01.03.2023

Frá og með 2. mars hækka vextir á nýjum fasteignalánum LSR. Hækkunin er á bilinu 0,1 til 0,3 prósentustig, mismikil á milli lánavalkosta. Þá hækka einnig vextir eldri verðtryggðra lána um 0,4 prósentustig.

Vextirnir breytast með eftirfarandi hætti:

  • Óverðtryggðir vextir hækka um 0,3 prósentustig og verða 8,20%. Vextir óverðtryggðra sjóðfélagalána hjá LSR eru fastir í 36 mánuði í senn.
  • Verðtryggðir breytilegir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,1 prósentustig og verða 2,6%. Verðtryggðir breytilegir vextir hjá LSR eru fastir til 3 ára í senn.
  • Verðtryggðir fastir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,1 prósentustig og verða 2,9%. Verðtryggðir fastir vextir hjá LSR haldast óbreyttir út allan lánstímann.

Jafnframt munu vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum sem gefin voru út fyrir 15. janúar 2019 hækka um 0,4 prósentustig og verða 2,2%. Sú breyting tekur gildi 1. apríl.

Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR.