Kynningar- og fræðslufundir um lífeyrismál fyrir virka sjóðfélaga
Árlega heldur LSR kynningarfundi fyrir virka sjóðfélaga A- og B-deild LSR í húsnæði LSR að Engjateigi 11.
Tilgangur fundanna er að fræðast um lífeyrismál; um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur.
Fundir á árinu 2018 verða eftirfarandi:
- 28. maí fyrir sjóðfélaga í B-deild LSR
- 29. maí fyrir sjóðfélaga í A-deild LSR
- 30. maí fyrir sjóðfélaga sem eiga réttindi bæði í A- og B-deild LSR.
Hægt er að velja um tvær tímasetningar, kl. 08:30 - 10:00 eða kl. 16:30 - 18:00.
Sjóðfélagar eru beðnir um að skrá sig á fundinn með því að hringja í síma 510 - 6100 eða með því að senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is og tilgreina nafn, kennitölu og val á tímasetningu.