Forskráning á skattframtöl

26.03.2008

Öll lán lífeyrissjóðsins eru nú forskráð á sundurliðunarblað með skattframtali til hagræðingar fyrir lántakendur. Við ákvörðun á færslu LSR lána inn í skattframtöl skiptir máli hvort þau hafa verið tekin vegna íbúðarkaupa eða ekki og því ekki hægt að færa þau inn að fullu fyrirfram heldur verða lántakendur að ákveða hvernig þau skuli færð inn í endanlegt framtal svo rétt sé.