Breyting á föstum vöxtum af sjóðfélagalánum

16.10.2007

Stjórnir Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga hafa samþykkt að fastir vextir LSR lána skuli frá og með 11. október 2007 vera 5,20%.

Umsóknir um lán með föstum vöxtum, sem þegar hafa borist sjóðunum til afgreiðslu og standast reglur um LSR lán, verða afgreiddar í samræmi við efni þeirra og þau vaxtakjör sem boðin voru hjá sjóðunum þegar umsóknirnar voru lagðar inn, svo fremi að skjöl verði sótt og full afgreidd fyrir 15.nóvember 2007. 

Þessi samþykkt hefur ekki áhrif á vaxtakjör eldri lána sem tekin hafa verið með föstum vöxtum.