Góð ávöxtun hjá LSR og LH á árinu 2006

13.04.2007

Nafnávöxtun LSR var 18,7% á árinu 2006 sem svarar til 10,9% hreinnar raunávöxtunar samanborið við 14,0% hreina raunávöxtun árið 2005. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ár er 8,6% og síðustu 10 ár 6,4%.
Heildareignir Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í árslok 2006 námu 282,3 milljörðum króna og uxu um tæpa 55 ma.kr. á árinu eða um 24,1%.
Ávöxtun einstakra eignaflokka sjóðsins var góð á síðasta ári. Raunávöxtun innlendra skuldabréfa var 4,9% og erlendra skuldabréfa sjóðsins 10,0%. Raunávöxtun innlendra hlutabréfa var 10,1% og raunávöxtun erlendra hlutabréfa 25,5% að teknu tilliti til gjaldeyrisvarna. Raunávöxtun annarra fjárfestinga nam 9,6%.
Í árslok 2006 voru 51,6% af verðbréfaeignum sjóðsins í innlendum skuldabréfum, 2,1% í erlendum skuldabréfum, 15,4% innlendum hlutabréfum, 29,9% í erlendum hlutabréfum og 1,0% í öðrum fjárfestingum.

B-deild LSR
Nafnávöxtun B-deildar LSR var 18,8% á árinu 2006 sem svarar til 11,0% hreinnar raunávöxtunar samanborið við 14,2% hreina raunávöxtun árið 2005. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ár er 8,7% og síðustu 10 ár 6,5%. Heildareignir deildarinnar námu 185,4 milljörðum króna í lok árs 2006 en 155,7 milljörðum króna í lok árs 2005. Raunávöxtun innlendra skuldabréfa í eigu B-deildar var 5,3%, raunávöxtun erlendra skuldabréfa 10,2%, raunávöxtun innlendra hlutabréfa 10,7%, raunávöxtun erlendra hlutabréfa 25,3% og raunávöxtun annarra fjárfestinga 9,8%.
Verðbréfaeign deildarinnar í árslok 2006 skiptist þannig að 52,4% voru í innlendum skuldabréfum, 1,9% í erlendum skuldabréfum, 15,6% í innlendum hlutabréfum, 29,2% í erlendum hlutabréfum og 0,9% í öðrum fjárfestingum.

A-deild LSR
Nafnávöxtun A-deildar LSR var 18,6% á árinu 2006 sem svarar til 10,9% hreinnar raunávöxtunar samanborið við 14,0% hreina raunávöxtun árið 2005. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ár er 8,1% og síðustu 10 ár 6,3%.
Heildareignir deildarinnar námu 91,2 milljörðum króna í lok árs 2006 en 67,5 milljörðum í lok árs 2005. Raunávöxtun innlendra skuldabréfa í eigu A-deildar var 3,9%, erlendra skuldabréfa 9,4%, raunávöxtun innlendra hlutabréfa 8,5%, erlendra hlutabréfa 25,9% og annarra fjárfestinga 9,4%.
Í árslok 2006 voru 49,8% af verðbréfaeignum deildarinnar í innlendum skuldabréfum, 2,5% í erlendum skuldabréfum, 15,2% í innlendum hlutabréfum, 31,4% í erlendum hlutabréfum og 1,0% í öðrum fjárfestingum.

Séreign LSR
Ávöxtun fjárfestingarleiða Séreignar LSR var á heildina litið góð. Nafnávöxtun Leiðar I var 17,9% sem svarar til 10,1% hreinnar raunávöxtunar. Nafnávöxtun Leiðar II var 12,3% sem svarar til 4,9% hreinnar raunávöxtunar. Hrein raunávöxtun Leiðar III sem er bundinn innlánsreikningur var 4,4% á síðasta ári.
Heildareignir Séreignar LSR námu 5,7 milljörðum kr. í árslok 2006 og jókst hrein eign sjóðsins um 1.391,8 m.kr. eða 32,5%.
Verðbréfaeign Leiðar I í árslok 2006 skiptist þannig að 50,5% voru í innlendum skuldabréfum, 2,6% í erlendum skuldabréfum, 15,5% í innlendum hlutabréfum, 30,5% í erlendum hlutabréfum og 0,9% í öðrum fjárfestingum. Verðbréfaeign Leiðar II um áramót var þannig að 71,9% var í innlendum skuldabréfum, 4,1% í erlendum skuldabréfum, 7,3% í innlendum hlutabréfum, 16,3% í erlendum hlutabréfum og 0,3% í öðrum fjárfestingum.

 Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga
Nafnávöxtun Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga var 18,9% á árinu 2006 sem svarar til 11,1% hreinnar raunávöxtunar samanborið við 13,7% hreina raunávöxtun árið 2005. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ár er 8,5% og síðustu 10 ár 6,4%.
Heildareignir Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga í árslok 2006 námu 22,1 milljarði króna og uxu um rúma 3,6 ma.kr. á árinu eða um 19,4%.
Ávöxtun einstakra eignaflokka sjóðsins var góð á árinu. Raunávöxtun innlendra skuldabréfa var 4,6% og raunávöxtun erlendra skuldabréfa 11,3%. Raunávöxtun innlendra hlutabréfa var 10,9% og raunávöxtun erlendra hlutabréfa sjóðsins var 25,6% að teknu tilliti til gjaldeyrisvarna. Raunávöxtun annarra fjárfestinga nam 9,5%.
Verðbréfaeign sjóðsins í árslok 2006 skiptist þannig að 49,1% voru í innlendum skuldabréfum, 2,4% í erlendum skuldabréfum, 15,2% í innlendum hlutabréfum, 32,2% í erlendum hlutabréfum og 1,0% í öðrum fjárfestingum.