Nýr kjarasamningur ríkisstarfsmanna – breytingar á launaviðmiði lífeyrisþega

31.05.2006

Þann 1. maí sl. tók gildi nýr kjarasamningur hjá ríkisstarfsmönnum. Honum fylgir ný launatafla sem þýðir að skrá þarf alla lífeyrisþega sem fá greitt samkvæmt “eftirmannsreglu” í nýjan launaflokk og þrep. Lífeyrisþegar sem fá greitt samkvæmt meðaltalsreglu njóta breytinga af þessum samningi með óbeinum hætti sem birtist í hærri lífeyri um hver mánaðamót. Mestrar hækkunar hjá þeim er að vænta 1. júlí og 1. ágúst nk.

Samkvæmt vefriti fjármálaráðuneytisins fengu um 12% ríkisstarfsmanna greidd laun þann 1. maí sl.  samkvæmt þessum nýja samningi og er áætlað að nálega helmingur fái laun samkvæmt honum nú 1. júní. Þar á bæ er gert ráð fyrir að greiða samkvæmt eldri launatöflum fram á haustið takist ekki að ljúka stofnanasamningum fyrir sumarleyfi. Enginn lífeyrisþegi á eftirmannsreglu fékk greitt samkvæmt nýjum samningi 1. maí og heldur ekki nú þann 1. júní.

Forsenda breytinga á launaviðmiði lífeyrisþega er gerð stofnanasamnings á hverjum vinnustað og því næst að launagreiðendur upplýsi sjóðinn um hvert launaviðmið lífeyrisþega skuli vera. Nú stendur sem hæst slík upplýsingaöflun hjá sjóðnum og verður unnið að því á næstu vikum og mánuðum að leiðrétta lífeyrisgreiðslur þeirra sem fá greitt samkvæmt “eftirmannsreglu”.