Útsending launamiða

27.01.2006

LSR hefur lokið útsendingu launamiða fyrir árið 2005. Launamiðar voru sendir til allra sjóðfélaga sem fengu lífeyrisgreiðslur á árinu 2005 úr A- og B-deild LSR, Séreign LSR og LH. Lífeyrisþegar eru hvattir til að yfirfara upplýsingar á launamiðum og hafa samband við sjóðinn ef athugasemdir finnast. Upplýsingar um lífeyrisgreiðslur koma forskráðar inn á skattaframtöl. Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk lífeyrisdeildar í síma 510 6100 einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið lsr@lsr.is.