Útsending ársyfirlita í Séreign LSR

27.04.2004

Í dag fá sjóðfélagar í Séreign LSR send ársyfirlit 2003. Með ársyfirlitum fylgja upplýsingar um ávöxtun ársins 2003. Á ársyfirlitum fá allir virkir sjóðfélagar í Séreign LSR notandanafn og lykilorð sem veitir aðgang að nýjum sjóðfélagavef LSR.

Rétt er að ítreka ábyrgð sjóðfélaga við að fylgjast með iðgjaldagreiðslum. Mikilvægt er að bera launaseðla saman við yfirlitið og gera án tafar athugasemdir ef iðgjöld hafa ekki borist sjóðnum í síma 510-6100 eða á netfang sereign@lsr.is. Vakin er athygli á því að ábyrgðarsjóður launa tryggir allt að 4% framlag sjóðfélaga í viðbótarlífeyrissparnað frá 1. janúar 2004.