Útsendingar til sjóðfélaga

10.05.2012

Árleg útsending yfirlita stendur yfir í þessa dagana. Allir greiðandi sjóðfélagar fá sent yfirlit í pósti með upplýsingum um iðgjaldagreiðslur ársins 2011. Mjög mikilvægt er að bera saman yfirlitið og launaseðlana. Vanti innborganir þá skal hafa samband við launagreiðanda eða LSR.

Nú gefst sjóðfélögum kostur á að afþakka yfirlit á pappír og sækja upplýsingar um iðgjaldagreiðslur og réttindi með rafrænum hætti á sjóðfélagavef LSR.

Með yfirlitum fylgir Fréttabréf LSR og upplýsingar um starfsemi sjóðanna á árinu 2011.

LSR vill vekja athygli á kynningarfundi fyrir sjóðfélaga þann 24. maí nk. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku með því að hringja í síma 510-6100 eða senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is.

Þeir sjóðfélagar sem fá greiddan lífeyri frá sjóðnum fá sent til sín Fréttabréf LSR auk auglýsingar um kynningar- og samráðsfund 15.maí nk.