Lækkun vaxta LSR lána

03.01.2013

Stjórnir LSR og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga (LH) hafa samþykkt að lækka vexti af lánum til sjóðfélaga frá og með 1. janúar. Vextir nýrra lána með föstum vöxtum verða lækkaðir úr 3,9% í 3,8%. Þessi samþykkt hefur ekki áhrif á vaxtakjör eldri lána sem tekin hafa verið með föstum vöxtum. Vextir lána með breytilegum vöxtum verða lækkaðir úr 3,6% í 3,5%.