Útsending launamiða og forskráning á skattframtöl

18.02.2013

Launamiðar

LSR hefur lokið útsendingu launamiða til allra sem fengu lífeyrisgreiðslur á árinu 2012 úr A- og B-deild LSR, LH og Séreign LSR. Lífeyrisþegar eru hvattir til að yfirfara upplýsingar á launamiðum og hafa samband við sjóðinn ef athugasemdir koma upp. Upplýsingar um lífeyrisgreiðslur eru forskráðar á skattaframtöl ef talið er fram á vefnum.

Forskráning lána

Til hagræðingar fyrir lántakendur eru öll lán lífeyrissjóðsins nú forskráð á sundurliðunarblaði skattframtala. Við ákvörðun á færslu lána inn á skattframtöl skiptir máli hvort þau hafa verið tekin vegna íbúðakaupa eða ekki. Það er því ekki hægt að færa þau inn að fullu fyrirfram heldur verða lántakendur að ákveða hvernig þau skuli færð inn í endanlegt framtal svo rétt sé.

Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk LSR í síma 510-6100; einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið lsr@lsr.is.