Útsendingar til sjóðfélaga

23.05.2014

Árleg útsending yfirlita stendur nú yfir. Allir sjóðfélagar sem greiddu iðgjöld á árinu 2013 fá sent yfirlit í pósti með upplýsingum þar um. Mjög mikilvægt er að bera saman yfirlitið og launaseðlana. Vanti innborganir, skal hafa samband við launagreiðanda eða LSR.

Sjóðfélögum gefst kostur á að afþakka yfirlit á pappír og sækja upplýsingar um iðgjaldagreiðslur og réttindi með rafrænum hætti á sjóðfélagavef LSR. Einfaldast er að afþakka pappír inn á sjóðfélagavefnum en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu sjóðsins.

Með yfirlitum í A-deild, B-deild og LH fylgir Fréttabréf LSR og upplýsingar um starfsemi sjóðanna á árinu 2013. Þeir sjóðfélagar sem ekki eru með séreignarsparnað hjá LSR fá einnig sent eyðublað fyrir samning um séreignarsparnað með sínu yfirliti.

LSR vill vekja athygli á kynningarfundum fyrir sjóðfélaga þann 3. og 4. júní nk. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku með því að hringja í síma 510-6100 eða senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is.

Fréttabréf LSR - maí 2014