Yfirlitaútsendingar til sjóðfélaga

30.04.2015

Árleg útsending yfirlita stendur yfir þessa dagana. Allir greiðandi sjóðfélagar, sem ekki hafa afþakkað yfirlit á pappír, fá sent yfirlit í pósti með upplýsingum um iðgjaldagreiðslur ársins 2014. Mjög mikilvægt er að bera saman upplýsingar um greidd iðgjöld og launaseðla. Vanti innborganir þá skal hafa samband við launagreiðanda eða LSR.

Sjóðfélögum gefst kostur á að afþakka yfirlit á pappír og sækja upplýsingar um iðgjaldagreiðslur og réttindi með rafrænum hætti á sjóðfélagavef LSR. Einfaldast er að afþakka pappír inn á sjóðfélagavefnum en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu sjóðsins.

Við viljum einnig minna á að Lífeyrisgáttina má finna á sjóðfélagavef LSR. Í Lífeyrisgáttinni fá sjóðfélagar á einum stað upplýsingar um áunnin lífeyrisréttindi sín í íslenskum lífeyrissjóðum.

Með yfirlitum í A-deild, B-deild og LH fylgir Fréttabréf LSR og upplýsingar um starfsemi sjóðanna á árinu 2014.

Með yfirlitum í Séreign LSR fylgir upplýsingayfirlit fyrir árið 2014.

LSR vill vekja athygli á kynningarfundum fyrir sjóðfélaga þann 12. og 13. maí nk. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku með því að hringja í síma 510-6100 eða senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is.