Útsending sjóðfélagayfirlita fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2018

18.10.2018

Útsending sjóðfélagayfirlita í A-deild og Séreign LSR stendur yfir þessa dagana. Allir greiðandi sjóðfélagar, sem ekki hafa afþakkað yfirlit á pappír, fá sent yfirlit í pósti með upplýsingum um iðgjaldagreiðslur fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2018. Mjög mikilvægt er að bera saman upplýsingar um greidd iðgjöld og launaseðla. Vanti innborganir þá skal hafa samband við launagreiðanda eða LSR.

Upplýsingar um iðgjaldagreiðslur og réttindi er hægt að sækja með rafrænum hætti á sjóðfélagavef LSR og þannig er auðvelt og þægilegt er að fylgjast með stöðu réttinda í rauntíma. Því hvetjum við sjóðfélaga til að hjálpa okkur að gera hlutina hagkvæmari og vistvænni með því að afþakka yfirlit á pappír. Sendu beiðni þess efnis á lsr@lsr.is eða hringdu í síma 510 6100.