Útsendingar á yfirlitum til sjóðfélaga

15.05.2018

Árleg útsending sjóðfélagayfirlita í A-deild, B-deild og Séreign LSR stendur yfir þessa dagana. Allir greiðandi sjóðfélagar, sem ekki hafa afþakkað yfirlit á pappír, fá sent yfirlit í pósti með upplýsingum um iðgjaldagreiðslur ársins 2017. Mjög mikilvægt er að bera saman upplýsingar um greidd iðgjöld og launaseðla. Vanti innborganir þá skal hafa samband við launagreiðanda eða LSR.

Upplýsingar um iðgjaldagreiðslur og réttindi er hægt að sækja með rafrænum hætti á sjóðfélagavef LSR. Sjóðfélagar eru hvattir til að vera umhverfisvænir og afþakka yfirlit á pappír. Einfaldast er að afþakka pappír inn á sjóðfélagavefnum en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu sjóðsins.

Með yfirlitum í A-deild og B-deild fylgir Fréttabréf LSR ásamt upplýsingum um starfsemi sjóðanna á árinu 2017

Ársfundur LSR og LH verður haldinn miðvikudaginn 23. maí 2018 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, kl. 15:00.

LSR vill einnig vekja athygli á kynningar- og fræðslufundum um lífeyrismál fyrir sjóðfélaga sem haldnir verða í húsnæði LSR að Engjateigi 11. Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá starfsmönnum LSR með því að hringja í síma 510 6100 eða senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is.