Vaxtabreytingar hjá LSR

17.03.2022

Frá og með föstudeginum 18. mars munu vextir sjóðfélagalána hjá LSR breytast með eftirfarandi hætti:

  • Vextir á verðtryggðum lánum sem eru með föstum vöxtum út allan lánstímann lækka um 0,2 prósentustig og verða 2,7%.
  • Vextir á verðtryggðum lánum sem sem eru fastir í 36 mánuði í senn lækka um 0,1 prósentustig og verða 2,2%.
  • Vextir á óverðtryggðum lánum hækka um 0,3 prósentustig og verða 5,4%. Vextir óverðtryggðra sjóðfélagalána hjá LSR eru fastir í 36 mánuði í senn.

Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR.