Vaxtabreytingar hjá LSR
Frá og með föstudeginum 24. júní munu vextir sjóðfélagalána hjá LSR breytast með eftirfarandi hætti:
- Vextir á verðtryggðum lánum sem eru með föstum vöxtum út allan lánstímann lækka um 0,1 prósentustig og verða 2,6%.
- Vextir á óverðtryggðum lánum hækka um 0,65 prósentustig og verða 6,95%. Vextir óverðtryggðra sjóðfélagalána hjá LSR eru fastir í 36 mánuði í senn.
Vextir á verðtryggðum lánum sem eru fastir í 36 mánuði í senn breytast ekki og haldast því áfram 2,2%.
Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR.