Vextir óverðtryggðra lána hækka í 5,1%

17.02.2022

Vextir óverðtryggðra lána LSR munu hækka úr 4,7% í 5,1% frá og með fimmtudeginum 17. febrúar 2022. Vextir óverðtryggða sjóðfélagalána hjá LSR eru fastir í 36 mánuði í senn.

Vextir á verðtryggðum lánum breytast ekki, en þeir eru nú annars vegar 2,9% á lánum sem eru með fasta vexti út allan lánstímann og 2,3% á lánum þar sem vextir eru fastir í 36 mánuði í senn. Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR.