Breytilegir vextir sjóðfélagalána frá 1. júlí 2016

03.06.2016

Breytilegir vextir sjóðfélagalána munu haldast óbreyttir í 3,34% frá og með 1. júlí næstkomandi. Breytilegir vextir sjóðfélagalána eru reiknaðir einum mánuði fyrir gildistöku nýrra vaxta og eru meðaltal ávöxtunarkröfu skuldabréfaflokks Íbúðalánasjóðs HFF150644 í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands síðustu þrjá mánuðina á undan að viðbættu 0,60% álagi. Frekari upplýsingar um vexti LSR lána má finna hér .

Vextir sjóðfélagalána með breytilegum vöxtum breytast fjórum sinnum á ári; þann 1. janúar, 1. apríl,1. júlí og 1. október ár hvert.

Stjórn LSR er þó ávallt heimilt að taka ákvörðun um að vextir sjóðfélagalána með breytilegum vöxtum taki breytingum miðað við annað viðmið en að framan greinir eða að þeir breytist samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni og taka þá mið af þróun verðtryggðra vaxta á markaði.