Séreign LSR - útsending yfirlita

08.10.2010

Þeir sjóðfélagar í Séreign LSR sem ekki hafa afþakkað yfirlit á pappír, fá sent yfirlit í pósti á næstu dögum. Yfirlitið sýnir upplýsingar um inneign, ávöxtun og iðgjaldagreiðslur á fyrri helmingi ársins 2010. Mjög mikilvægt er að bera saman yfirlitið og launaseðla frá launagreiðanda. Vanti innborganir þá skal hafa samband við launagreiðanda eða LSR.

Hægt er að afþakka yfirlit á pappír og sækja allar upplýsingar með rafrænum hætti á sjóðfélagavef LSR. Hafið samband við LSR til að afþakka yfirlit á pappír, í síma 510-6100 eða sendið netpóst í lsr@lsr.is.

Til að óska eftir lykilorði að sjóðfélagavef LSR er nóg að senda beiðni í netpósti á adgangur@lsr.is.

Með yfirlitum fylgir Fréttabréf Séreignar LSR.