Útsendingar á yfirlitum til sjóðfélaga

03.05.2017

Árleg útsending yfirlita stendur yfir þessa dagana. Allir greiðandi sjóðfélagar, sem ekki hafa afþakkað yfirlit á pappír, fá sent yfirlit í pósti með upplýsingum um iðgjaldagreiðslur ársins 2016. Mjög mikilvægt er að bera saman upplýsingar um greidd iðgjöld og launaseðla. Vanti innborganir þá skal hafa samband við launagreiðanda eða LSR.

Sjóðfélögum gefst kostur á að afþakka yfirlit á pappír og sækja upplýsingar um iðgjaldagreiðslur og réttindi með rafrænum hætti á sjóðfélagavef LSR. Einfaldast er að afþakka pappír inn á sjóðfélagavefnum en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu sjóðsins.

Með yfirlitum í A-deild, B-deild og LH fylgir Fréttabréf LSR og upplýsingar um starfsemi sjóðanna á árinu 2016. Sjóðfélagar í A-deild LSR fá að auki bækling um breytingar á A-deild þann 1. júní n.k.

LSR vill vekja athygli á kynningarfundum fyrir sjóðfélaga í maí nk. Annars vegar kynningarfundi um breytingar á A-deild LSR sem haldnir verða í Reykjavík , Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum og hins vegar almenna kynningar- og fræðslufundi um lífeyrismál sem haldnir verða í húsnæði LSR að Engjateigi 11. Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá starfsmönnum LSR með því að hringja í síma 510 6100 eða senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is