Vaxtabreytingar hjá LSR

26.01.2023

Frá og með 26. janúar hækka vextir á tveimur tegundum nýrra fasteignalána hjá LSR um 0,1 prósentustig. Breytingin gildir fyrir lán sem eru með vexti fasta til þriggja ára í senn, bæði verðtryggð og óverðtryggð.

Vextirnir breytast með eftirfarandi hætti:

  • Verðtryggðir breytilegir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,1 prósentustig og verða 2,5%. Verðtryggðir breytilegir vextir hjá LSR eru fastir til 36 mánaða í senn.
  • Óverðtryggðir vextir hækka um 0,1 prósentustig og verða 7,9%. Vextir óverðtryggðra sjóðfélagalána hjá LSR eru fastir í 36 mánuði í senn.

Engar breytingar verða á verðtryggðum föstum vöxtum nýrra fasteignalána, sem haldast 2,8%. Verðtryggðir fastir vextir hjá LSR haldast óbreyttir út allan lánstímann.

Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR.