Vextir óverðtryggðra lána verða 9,4%

31.05.2023

Vextir óverðtryggðra lána LSR hækka um 0,5 prósentustig, úr 8,9% í 9,4% frá og með fimmtudeginum 1. júní 2023. Vextir óverðtryggðra sjóðfélagalána hjá LSR eru fastir í 36 mánuði í senn.

Vextir á verðtryggðum lánum breytast ekki, en þeir eru nú annars vegar 2,9% á lánum sem eru með fasta vexti út allan lánstímann og 2,6% á lánum þar sem vextir eru fastir í 36 mánuði í senn.

Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR.